Um Íslenskuskólann
MARKMIÐ
Íslenskuskólans í Hollandi er að gefa íslenskum nemendum kost á að viðhalda og bæta þekkingu sína á íslenskri tungu, menningu og þjóðhátttum. Sérstök áhersla er lögð á að kenna börnum á þann hátt sem hæfir tví-/fjöltyngdum börnum. Á þessari vefsíðu er að finna helstu upplýsingar um starfsemi skólans.
Fjöldi aldurshópa fer eftir aðstæðum hverju sinni. En venjulega er um að ræða að tvo hópa, börn 4-6 ára og krakkar 7 ára og eldri. Þau börn sem verða 4 ára á árinu mega skrá sig í janúar það ár ef vilji er fyrir hendi. Það ár sem börnin verða 7 ára flytjast þau í eldri hópinn að hausti til.
Hópur 4-6 ára
<vantar lýsingu>
Hópur 7 ára og eldri
Aðalmarkmiðin okkar eru þau að örva og rækta íslenskt mál. Það eru til margar leiðir til þess og notum við mikið leik í okkar starfi. Sem dæmi má nefna að skólaárið 2010-2011 er annað árið í röð sem sett er upp leikrit sem unnið er að alla önnina. Það fer mikill tími í hugmyndavinnu hjá nemendum sem og æfingar. Að öðru leyti erum við með sama skipulag á hverjum skóladegi.
Sjá nánar um þetta hér: http://www.islenskuskolinn.nl/starfsemin/namsfyrirkomulag

